Lýsing
Afriðilsmódúll f. mótorbremsu
Hlutverk afriðilsmódúlsins er tvíþætt – annarsvegar að útvega jafnspennu og hinsvegar að svissa mótorbremsunni. Um er að ræða hálfbylgjuafriðil, sem þýðir að útgangsspenna er í kring um 45% af inngangsspennu. Í öxulmótorum fyrir iðnaðarhurðir eru seglar í mótorbremsum alla jafna gerðir fyrir ~103VDC, sem er nálægt því að vera 45% af 230VAC.
Heiti: PME-500-S
Hámarksinngangsspenna: 500VAC
Hámarksstraumur: 1A
Útgangsspenna: Uinn * 0,45 (t.d. 230VAC * 0,45 = 103,5VDC)
Tengingar: 2 skrúfutengi fyrir fæðispennu, 2 skrúfutengi fyrir mótorbremsu og 2 skrúfutengi fyrir inngangsmerki til að svissa mótorbremsu (n/o liðavirkni).
Stærð: 37mm x 24mm x 16mm (L x B x H)