Lýsing
Snúningsteljari fyrir hurðarmótora, notaður fyrir stafrænar endastöður hurðar. Teljarinn er festur upp á driföxul sem stendur út úr gírnum á hurðarmótornum og er svo tengdur við stjórnbúnaðinn.
Staðalbúnaður með hurðarmótorum frá MFZOvitor / Marantec / Pro-Line og virkar þar af leiðandi með CS300 / CS310 / CS320 stjórnbúnaði frá sama framleiðanda. Virkar einnig með UST1 og D-Pro Automatic stjórnbúnaði frá NICE / MTEC sem kemur með hurðum frá Sindra / Áltaki. Og að lokum með Dalmatic TAE / Pro-Line öxulmótorum.
Sama form og á snúningsteljurum sem eru notaðir í Hörmann og GFA Elektromaten mótorum. Þar af leiðandi hægt að nota til að aðlaga CS300 / CS310 / CS320 stjórnbúnað að þeim.
Upplýsingar Kostal snúningsteljari
Leiðbeiningar:
Endurnýjun á snúningsteljara í Mtec / Nice / Loading Systems öxulmótor (íslenska)